Leiguferlið

Í einföldu máli:

 1. Skoðaðu úrvalið af flíkum til leigu inn á hatidarleiga.is.

 2. Pantaðu tíma í mátun (ef þú vilt) og komdu til okkar í Ármúla eða í Reykjanesbæ að máta.

 3. Bókaðu flíkina inn á hatidarleiga.is. Þar er einnig að finna skilmálana okkar.

 4 . Daginn fyrir afhendingu færðu tölvupóst með upplýsingum um hvar og hvenær þú getur sótt og skilað pöntninni þinni. Afhending og skil á pöntunum fer fram í Partyland Holtagörðum, Ármúla 24 eða í Reykjanesbæ. 

 5. Ef að tjón kemur upp á leiguferli er unnið úr því samanber skilmálana okkar.

Ef þið hafið einhverjar spurningar eða athugasemdir getið þið sent okkur skilaboð í gegnum instagram @hatidarleiga!